Yfirheyrslan

Fullt nafn

Axel Bóasson

Golfklúbbur

Golfklúbburinn Keilir

Forgjöf

+5,4

Hvenær byrjaðir þú að spila golf?

Ég byrjaði 10 ára í golfi

Hvað er það sem þér finnst best við golf?

Mér finnst best að vera úti í náttúrunni að spila flottan golfvöll. Einnig finnst mér að keppa við sjálfan mig og aðra í þessari frábæru íþrótt.

Hver er uppáhalds golfvöllurinn þinn á Íslandi og erlendis?

Keilir og Old Waverly

Hver er uppáhalds kylfan í pokanum þínum?

58 gráður

Hefur þú slegið rangan bolta?

Hef ekki gert það.

Hver er eftirminnilegasti golfhringur sem þú hefur spilað?

Lokahringurinn í Íslandsmótinu 2011 í Leirunni.

Hefur þú farið holu í höggi? Hvenær og hvar?

Já ég hef farið holu í höggi 10 holunni í Keilir 16 holu á Matalascanas 7 holu á Infinitum lakes vellinum 8 holu Samso golf club.

Hvað er það fyndnasta eða skelfilegasta sem hefur gerst hjá þér á golfvellinum?

Skelfillegasta sem hefur gerst fyrir mig á golfvelli er að slá í manneskju á golfvellinum. Hrikaleg tilfinningin verð ég að segja.

Drauma hollið (lifandi eða látnir), hverjir væru það?

Tiger Woods, Rory Mcilroy, Scottie Scheffler.

Hraðaspurningar

Hvort segir þú oftar – golfbolti eða golfkúla?

Golfbolti

Spilar þú með hvítum golfbolta?

Alltaf

Uppáhalds tegund golfbolta?

Titleist

Morgun-, síðdegis- eða kvöldgolf?

Morgungolf, Síðdegisgolf, Kvöldgolf.

Oftar golfbíll eða ganga?

Ganga

Hvort spilar þú meira á Íslandi eða erlendis?

Á Íslandi.

Ertu með birdie-pela í pokanum?

Nei

Ferð þú í klúbbhúsið eftir hring – jafnvel í mat eða drykk?

Stundum

Hvað vilt þú segja að lokum – og hvern skorar þú næst á í Yfirheyrslu Golfbolti.is?

Frábær vefsíða. Skora á vin min Harald Franklín Magnús.