Bandaríski kylfingurinn Gary Woodland fagnaði tilfinningaþrungnum sigri á Texas Children’s Houston Open um helgina – sínum fyrsta á PGA Tour síðan hann gekkst undir heilaaðgerð árið 2023.
Woodland lék frábærlega á Memorial Park Golf Course og hafði örugga forystu fyrir lokahringinn. Hann endaði á 21 höggi undir pari, fimm höggum á undan Dananum Nicolai Højgaard.
Sigurinn var sérstaklega merkilegur í ljósi þess sem Woodland hefur gengið í gegnum. Árið 2023 kom í ljós mein í heila hans. Hann fór í umfangsmikla aðgerð í september sama ár, en hefur síðan einnig glímt við Post-traumatic stress disorder (áfallastreituröskun).
Þrátt fyrir að hafa snúið aftur til keppni árið 2024 átti hann erfitt andlega og lýsti því nýlega opinberlega hvernig hann hefði upplifað mikinn ótta og tilfinningalega erfiðleika. Woodland sagði að það að opna sig hefði létt verulega á sér.
„Ég er í baráttu, en með stuðninginn í kringum mig hef ég von,“ sagði hann eftir sigurinn.
Sigurinn tryggir honum einnig þátttökurétt á The Masters sem fram fer eftir tvær vikur.
Þrátt fyrir sigurinn segir Woodland að baráttunni sé hvergi nærri lokið:
„Þetta var góður dagur, en ég á enn langa leið fyrir höndum. Ég er þó stoltur af sjálfum mér.“





