Yfirheyrslan

Fullt nafn

Guðrún Brá Björgvinsdóttir

Golfklúbbur

Keilir

Forgjöf

+3,4

Hvenær byrjaðir þú að spila golf?

Golf hefur alltaf verið í kringum mig en ég byrjaði að æfa þegar ég var um 10 ára.

Hvað er það sem þér finnst best við golf?

Mér finnst fallegasta við golf hvað það dregur saman ólíka hópa af fólki – allir geta spilað saman óháð aldri eða getu. Það er líka frábær hreyfing og útivera. Svo er golf skemmtilegt og krefjandi áskorun sem heldur manni alltaf á tánum og gefur manni tækifæri til að bæta sig stöðugt.

Hver er uppáhalds golfvöllurinn þinn á Íslandi og erlendis?

Uppáhaldsvöllurinn minn heima er auðvitað Keilir en ég held líka mikið upp á golfvöllinn í Vestmannaeyjum. Mér finnst rosalega erfitt að svara hvaða uppáhalds völlurinn minn erlendis er þar sem ég hef spilað á svo mörgum frábærum völlum en það sem hefur staðið upp úr er Karuizawa í Japan, Big Horn og Mission Hills í Kaliforníu og Pearl Valley í Suður Afríku.

Hver er uppáhalds kylfan í pokanum þínum?

Driverinn.

Hefur þú slegið rangan bolta?

Nei aldrei.

Hver er eftirminnilegasti golfhringur sem þú hefur spilað?

Það eru margir hringir mjög eftirminnilegir en allir með misgóðar minningar. Það sem mér dettur fyrst í hug er hringur í Q school fyrir 3 árum þar sem ég læstist inn á klósetti eftir 4 holur og mikið stress sem fylgdi því. En svo er seinasti hringurinn í Íslandsmótinu í fyrra á Keili, mjög eftirminnilegur, á kannski mun betri hátt.

Hefur þú farið holu í höggi? Hvenær og hvar?

Ég hef farið 2 sinnum Holu í höggi. Fyrsta skiptið var á 6.holu á Akranesi að spila æfingarhring fyrir mót þar. Annað skiptið var ég að spila í Finnlandi á LETaccess móti.

Hvað er það fyndnasta eða skelfilegasta sem hefur gerst hjá þér á golfvellinum?

Held ég verði bara að vitna aftur í klósett söguna mína frá Q school.

Drauma hollið (lifandi eða látnir), hverjir væru það?

Hefði viljað spila með Tiger Woods og Anikku Sörenstram þegar þau voru upp á sitt besta og bjóða svo Scottie Scheffler með.

Hraðaspurningar

Hvort segir þú oftar – golfbolti eða golfkúla?

Golfbolti.

Spilar þú með hvítum golfbolta?

Alltaf.

Uppáhalds tegund golfbolta?

Titleist

Morgun-, síðdegis- eða kvöldgolf?

Morgungolf.

Oftar golfbíll eða ganga?

Ganga.

Hvort spilar þú meira á Íslandi eða erlendis?

Erlendis.

Ertu með birdie-pela í pokanum?

Nei.

Ferð þú í klúbbhúsið eftir hring – jafnvel í mat eða drykk?

Stundum.

Hvað vilt þú segja að lokum – og hvern skorar þú næst á í Yfirheyrslu Golfbolti.is?

Takk fyrir mig og ég skora á Birgi Björn Magnússon.