Næsta stóra verkefni íslensks kvennagolfs er hafið þegar Ladies European Tour fer fram í Suður-Afríku, þar sem Joburg Ladies Open hefst 16. apríl og stendur yfir til 19. apríl.
Mótið er sjöunda mót tímabilsins og fer fram á Firethorn vellinum á Randpark Golf Club í Jóhannesarborg – krefjandi par-73 velli sem hefur áður hýst stórmót á DP World Tour. Aðstæður á vellinum kalla á nákvæmni, þolinmæði og sterka ákvörðunartöku, sérstaklega á flötum þar sem hraði og staðsetningar skipta sköpum.
Leiknar verða 72 holur með verðlaunafé upp á €330.000, þar sem 120 kylfingar taka þátt og samkeppnin er afar hörð.
Guðrún Brá hefur leik kl. 09:10 (íslenskur tími) og leikur með Mörtu Sanz Barrio (ESP) og Ayako Uehara (JPN).





