Íslandsmeistarinn Dagbjartur Sigurbrandsson fór frábærlega af stað á Royal Unibrew Championship og er í toppbaráttu eftir fyrsta hring.
Dagbjartur lék á fimm höggum undir pari og er jafn í öðru sæti eftir fyrsta daginn, aðeins einu höggi á eftir forystunni. Hann kláraði hringinn með miklum krafti, þar sem hann náði sér í örn og fugl á síðustu tveimur holunum.
Hlynur Bergsson og Sigurður Arnar Garðarsson áttu einnig góðan dag en þeir deila 10 sætinu eftir fyrsta hring, en þeir léku báðir á þremur undir pari og enduðu á 69 höggum.
Mótið er hluti af Nordic Golf League, þar sem sterk úrslit geta skipt sköpum í baráttunni um sæti á HotelPlanner Tour, næst sterkustu mótaröð Evrópu.





