Íslenskir kylfingar létu vel að sér kveða á Royal Unibrew Championship í Danmbörku sem lauk í gær, þar sem þrír keppendur náðu góðum árangri á einni sterkustu þróunarmótaröð Evrópu.
Dagbjartur Sigurbrandsson var fremstur Íslendinganna og hafnaði í fjórða sæti á ellefu höggum undir pari. Hann var í toppbaráttu allt mótið og kláraði af miklum krafti með þremur fuglum í röð á lokaholunum, sem tryggði honum sæti meðal efstu manna. Hringir hans, 67-71-67, endurspegla stöðugan leik og sterkan endasprett.
Sigurður Arnar Garðarsson var skammt undan og endaði í fimmta sæti eða tíu undir pari eftir jafna og góða spilamennsku alla vikuna., 69-69-68. Lokahringur hans var sérstaklega eftirtektarverður, þar sem hann safnaði átta fuglum og staðfesti enn frekar að hann er í miklu formi. Hann hefur nú endað í topp níu í þremur af fjórum mótum tímabilsins.
Hlynur Bergsson komst í gegnum niðurskurð og lauk keppni jafn í 42. sæti. spilaði hringina á 69- 71-75. Þrátt fyrir erfiðan lokahring bætir hann við sig mikilvægum stigum á mótaröðinni.
Mótið er hluti af Nordic Golf League (ECCO Tour), sem er mikilvægur stökkpallur fyrir kylfinga sem stefna á HotelPlanner Tour, næst sterkustu mótaröð Evrópu.
Með árangri sínum bæta íslensku kylfingarnir stöðu sína á stigalistanum:
- Dagbjartur í 20. sæti
- Sigurður Arnar í 32. sæti
- Hlynur í 41. sæti
Efstu fimm kylfingarnir í lok tímabilsins tryggja sér þátttökurétt á næsta stigi og því er hver keppni lykilskref í átt að atvinnumennsku.





