Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús lauk leik á Italian Challenge Open á níu höggum undir pari og hafnaði jafn í 41. sæti eftir stöðuga spilamennsku alla vikuna.
Mótið fór fram á Golf Nazionale vellinum í Viterbo á Ítalíu og er hluti af HotelPlanner Tour, næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.
Haraldur lék hringina fjóra á (70-70-69-70) og endaði samtals á 279 höggum eða níu undir pari.
Haraldur sýndi mikinn stöðugleika í leik sínum á mótinu og hélt sig allan tímann vel undir pari. Lokahringurinn var upp á tvö högg undir pari þar sem hann fékk fugla á 2., 7. og 13. holu.
Þrátt fyrir skolla á 4. holu hélt hann vel einbeitingu og kláraði mótið með traustum hætti.
Haraldur fær nú stutt hlé áður en næsta verkefni tekur við á HotelPlanner Tour mótaröðinni.
Næsta mót hans verður Challenge de Catalunya sem fram fer dagana 14.–17. maí á Fontanals Golf Club í Girona á Spáni.
Það verður spennandi að fylgjast áfram með Haraldi Franklín, sem hefur verið að sýna jafna og góða spilamennsku á tímabilinu gegn sterkum keppendum Evrópugolfsins.





