Yfirheyrslan
Haraldur Franklín Magnús
Atvinnumaður í golfi
Golfklúbbur
Golfklúbbur Reykjavíkur
Forgjöf
Veit ekki
Hvenær byrjaðir þú að spila golf?
Ég byrjaði í kringum 12/13 ára. Enginn í fjölskyldunni spilaði golf en við álftuðumst inná golfvöll í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Ást við fyrsta högg.
Hvað er það sem þér finnst best við golf?
Keppnin. Ég er keppnismaður og fæ útrás í golfi. Bæði keppa við mig og aðra. Svo er golf líka sambland af félagsskap og einveru. Ég á fullt af vinum í golfi og hef líka gaman að vera aleinn að æfa mig. Svo er allt skemmtilegra utandyra.
Hver er uppáhalds golfvöllurinn þinn á Íslandi og erlendis?
Uppáhaldsgolfvöllurinn minn er Royal Portrush á Norður Írlandi. Hér heima finnst mér Vestmannaeyjar skemmtilegastur. En Korpa og Keilir bestu keppnisvellirnir.
Hver er uppáhalds kylfan í pokanum þínum?
Dræver. Þeir sem halda öðru fram eru að ljúga.
Hefur þú slegið rangan bolta?
Nei og mun ekki gera.
Hver er eftirminnilegasti golfhringur sem þú hefur spilað?
Eftirminnilegasti hringurinn er 1.hringur á Opna Breska árið 2018. Það var jafn gaman og það var stressandi. Svo í fyrra átti ég hring uppá 60högg á Challenge Tour. Þar gekk allt upp nema lokapúttið.
Hefur þú farið holu í höggi? Hvenær og hvar?
Einu sinni farið holu í höggi. Árið 2006 á stuttu holunni í Oddinum.
Hvað er það fyndnasta eða skelfilegasta sem hefur gerst hjá þér á golfvellinum?
Ég spilaði í “pro-am” móti í Danmörku um árið. Þar eru áhugakylfingar sem spila með atvinnumönnum í golfi. Annar áhugamaður í hollinnu virtist vera eitthvað “off” þennan daginn. Það endaði með því að hann fékk hjartaáfall á 16flöt. Ég var sendur hlaupandi að hringja á sjúkrabíl á dönsku og vísa þeim leiðina á 16.flöt. Það var ekkert fyndið við það en nokkuð skelfilegt. Kallinn hafði það af.
Drauma hollið (lifandi eða látnir), hverjir væru það?
Það væri einhver gömul “legend”. Ben Hogan, Sam Snead og George Knudson.
Hraðaspurningar
Hvort segir þú oftar – golfbolti eða golfkúla?
Golfkúla.
Spilar þú með hvítum golfbolta?
Alltaf.
Uppáhalds tegund golfbolta?
Titleist
Morgun-, síðdegis- eða kvöldgolf?
Morgungolf, Síðdegisgolf, Kvöldgolf.
Oftar golfbíll eða ganga?
Ganga.
Hvort spilar þú meira á Íslandi eða erlendis?
Erlendis.
Ertu með birdie-pela í pokanum?
Nei.
Ferð þú í klúbbhúsið eftir hring – jafnvel í mat eða drykk?
Alltaf.
Hvað vilt þú segja að lokum – og hvern skorar þú næst á í Yfirheyrslu Golfbolti.is?
Takk fyrir og ég skora á David Barnwell. Golfkennara hjá Golfklúbbi Reykjavíkur.



