Rory McIlroy heldur áfram að vera stærsta nafnið á PGA Championship mótinu sem fram fer á Aronimink-vellinum í Pennsylvaníu, þar sem Norður-Írinn er enn í góðri stöðu fyrir lokadaginn og draumurinn um að vinna öll fjögur risamót ársins lifir áfram.
McIlroy kom inn í mótið sem ríkjandi Masters-meistari og eini kylfingurinn í heiminum sem getur unnið aftur hið svokallaða Grand Slam á árinu. Til þess þarf hann að sigra á öllum fjórum risamótum á árinu 2026.
Aronimink-völlurinn hefur reynst afar krefjandi í vikunni og skapað sannkallaða risamótsstemmingu. Vindur hefur haft mikil áhrif á leikinn síðustu daga og hraðar flatir ásamt erfiðum glompum og þykkum karga hafa refsað minnstu mistökum.
McIlroy sýndi þó enn á ný hvers vegna hann er talinn einn besti kylfingur sinnar kynslóðar. Þrátt fyrir erfiða stöðu á 17. holu á þriðja hring tókst honum að bjarga mikilvægum skolla eftir vandræðalega legu í glompu við flötina.
Á sama tíma heldur toppbaráttan áfram að þéttast.
Jon Rahm er á meðal þeirra sem sækja hart að efstu mönnum, á meðan heimsnúmer eitt, Scottie Scheffler, hefur einnig verið áberandi ásamt Xander Schauffele og sænska stjörnukylfingnum Ludvig Åberg .
Óvænt nöfn hafa einnig blandað sér í toppbaráttuna á meðan völlurinn heldur áfram að reynast mörgum erfiður. Það hefur þó aðeins aukið á spennuna fyrir lokadaginn þar sem mjög mjótt er á milli efstu manna.
Aronimink-völlurinn hefur fengið mikið lof frá bæði leikmönnum og sérfræðingum í vikunni. Endurbætur á vellinum undir stjórn vallahönnuðarins Gil Hanse hafa skapað eitt glæsilegasta mótssvið ársins að mati margra.
Það er ljóst að allur golfheimurinn fylgist spentur með á lokadeginum á morgun sunnudag, hvort McIlroy takist að vinna PGA Championship og verður þá umræðan um mögulegt Grand Slam aðeins meiri þegar keppnin færist yfir á U.S. Open í næsta mánuð.




