Það áttu flestir von á því að einhver af stærstu nöfnunum í golfheiminum myndi standa uppi sem sigurvegari á PGA Championship. Rory McIlroy, Jon Rahm, Scottie Scheffler og Xander Schauffele voru allir í toppbaráttunni þegar leið á lokadaginn á Aronimink.
En á meðan stórstjörnurnar fylgdust hver með annarri steig einn rólegasti og hógværasti leikmaður PGA-mótaraðarinnar fram í sviðsljósið.
Aaron Rai varð óvæntur sigurvegari PGA Championship og skrifaði um leið nýjan kafla í golfsöguna. Englendingurinn varð fyrsti enski kylfingurinn til að vinna PGA Championship og jafnframt fyrsti kylfingurinn af indverskum uppruna til að vinna risamót í karlaflokki.
Sigurinn kom þó ekki úr engu fyrir þá sem fylgjast náið með Rai.
Hann hefur lengi verið þekktur sem einn samviskusamasti og vinnusamasti leikmaður atvinnugolfsins. Á meðan aðrir leikmenn yfirgefa æfingasvæðið sést Rai oft enn á púttflötinni seint á kvöldin eða í ræktinni eftir æfingar. Allir kylfingar á mótaröðinni tala um hann af mikilli virðingu.
„Þú finnur ekki eina manneskju á svæðinu sem er ekki ánægð fyrir hans hönd,“ sagði McIlroy eftir lokahringinn.
Lokakaflinn á Aronimink var hreint magnað golf.
Rai lék síðustu tíu holurnar á sex höggum undir pari og skildi alla í toppbaráttuna eftir. Hann hóf upphafið að sigurgöngunni með stórkostlegum erni á 9. holu áður en fuglar á 11., 13., 16. og 17. holu tryggðu honum öruggan sigur.
Sérstaklega verður fuglapúttið á 17. holu lengi í minnum haft. Þar setti Rai niður rúmlega tuttugu metra pútt sem vakti eitt stærsta fagnaðarlát vikunnar og slökkti nánast alla spennu í mótinu.
En kannski er það ekki aðeins golfið sem hefur heillað fólk þessa vikuna heldur persónan Aaron Rai.
Rai ólst upp í Wolverhampton á Englandi, sonur innflytjenda frá Indlandi og Kenía. Foreldrar hans unnu hörðum höndum til að styðja draum sonar síns og faðir hans kenndi honum frá unga aldri að bera virðingu fyrir hlutunum sínum og leggja sig fram í öllu sem hann gerði.
Það er meðal annars ástæðan fyrir því að Rai notar enn járnakylfuhlífar eitthvað sem hefur lengi verið talið óvenjulegt meðal atvinnukylfinga.
„Ég geri þetta til að muna hvaðan ég kem og til að sýna virðingu fyrir því sem ég á,“ sagði Rai nýlega.
Kannski er það einmitt þess vegna sem sigur hans hefur vakið svo mikla athygli í golfheiminum.
Á tímum þar sem ímynd, samfélagsmiðlar og stór nöfn ráða oft umræðunni mætti einn hljóðlátur Englendingur með tvo hanska, járnakylfuhlífar og ótrúlega vinnusemi og vann eitt stærsta mót ársins.
golfbolti.is





