Aron Snær Júlíusson og Perla Sól Sigurbrandsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar í Reykjanesmóti GS og GSG sem markaði upphaf GSÍ mótaraðarinnar í sumar. Mótið bauð upp á mikla spennu, krefjandi aðstæður og dramatískan lokadag á Hólmsvelli í Leiru.
Mikill vindur setti svip sinn á fyrsta keppnisdaginn og reyndust aðstæður kylfingum erfiðar. Hákon Örn Magnússon lék best allra á fyrsta hring og leiddi karlaflokkinn á fjórum höggum undir pari, en meðal þeirra sem fylgdu fast á eftir voru Axel Bóasson og Tómas Eiríksson Hjaltested.
Annar keppnisdagur átti að fara fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis, en vegna slæms veðurs var hringnum aflýst og mótið stytt í 36 holur.
Á lokahringnum small leikurinn hins vegar hjá Aron Snæ. Íslandsmeistarinn fyrrverandi lék hringinn á glæsilegum 65 höggum, sex undir pari, sem var besti hringur mótsins. Aron fékk sex fugla og lék án þess að tapa höggi.
Sigurinn var sérstaklega eftirminnilegur í ljósi þess að Aron hafði lent í miklum erfiðleikum á fyrri hringnum þar sem hann lék níundu holuna á fimm höggum yfir pari.
Aron og Axel Bóasson enduðu jafnir á þremur höggum undir pari og þurfti því bráðabana til að skera úr um sigurinn. Þar hafði Aron betur með öruggu pari á 16. holu og hafnaði Axel því í öðru sæti.
Tómas Eiríksson Hjaltested hafnaði í þriðja sæti á tveimur höggum undir pari og heldur áfram stöðugu gengi sínu á GSÍ mótaröðinni.
Í kvennaflokki var baráttan einnig hörð. Perla Sól og Fjóla Margrét Viðarsdóttir voru jafnar fyrir lokahringinn og enn jafnar þegar níu holur voru eftir.
Perla reyndist hins vegar sterkari á lokasprettinum og lék síðustu níu holurnar á einu höggi undir pari á meðan Fjóla lék þær á fjórum yfir pari. Með því tryggði Perla sér sigur í fyrsta móti sumarsins.
Eva Kristinsdóttir endaði í þriðja sæti eftir sterkan lokahring upp á 73 högg.




