Næstu dagar verða afar viðburðaríkir hjá íslensku atvinnu- og afrekskylfingunum okkar, keppni hefst bæði á sterkum atvinnumótaröðum erlendis og á GSÍ mótaröðinni hér heima.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er þessa dagana stödd í Frakklandi þar sem hún tekur þátt í Jabra Ladies Open mótinu á Ladies European Tour. Mótið fer fram dagana 28.–30. maí á hinum glæsilega Evian Resort Golf Club velli í Evian-les-Bains við Genfarvatn.
Evian-völlurinn er einn þekktasti golfvöllur Evrópu og hefur um árabil verið heimavöllur Evian Championship risamótsins. Völlurinn er þekktur fyrir stórbrotið útsýni yfir Alpana og Genfarvatn, auk þess að vera einn tæknilega erfiðasti völlur Evrópu. Hér er hægt að fylgjast með mótinu
Á meðan heldur Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson áfram leik á Nordic Golf League mótaröðinni á Trust Forsikring Championship mótinu sem fram fer á Lyngbygaard Golf Klub vellinum í Danmörku dagana 27.–29. maí.
Þegar þetta er skrifað eru Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson komnir af stað á fyrsta keppnisdegi Trust Forsikring Championship mótsins í Danmörku. Hér er hægt að fylgjast með mótinu
Þá halda íslensku stelpurnar áfram sókn sinni á LET Access Series mótaröðinni þegar Andrea Bergsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir hefja leik í Frakklandi í næstu viku á Golf de Montauban vellinum.
Hér heima beinast síðan augu golfáhugafólks að Korpúlfsstaðavelli þar sem Korpubikarinn fer fram dagana 29.–31. maí í samstarfi við FirstWater. Mótið er annað mótið á GSÍ mótaröðinni í sumar og þar mætast bestu kylfingar landsins í 54 holu höggleik.
Leikið verður á Sjónum og Ánni á Korpúlfsstaðavelli og eftir 36 holur verður niðurskurður þar sem aðeins 70% keppenda halda áfram inn í lokahringinn. Mikill áhugi hefur verið á mótinu og búast má við afar sterkum keppendalistum bæði í karla- og kvennaflokki.
Það er því ljóst að íslenskt atvinnugolf er á mikilli uppleið. Íslenskir kylfingar eru nú farnir að láta verulega að sér kveða á sterkustu þróunarmótaröðum Evrópu og framtíðin virðist björt. Næstu vikur verða afar spennandi og áhugavert verður að fylgjast með keppnum bæði hér heima sem og erlendis.
golfbolti.is





