Golfbolti.is

Yfirheyrslan

Valdís Þóra Jónsdóttir
PGA golfkennari, fararstjóri og fyrrverandi atvinnumaður

Golfklúbbur

GL

Forgjöf

+3

Hvenær byrjaðir þú að spila golf?

8 ára man ég fyrst eftir mér

Hvað er það sem þér finnst best við golf?

Það jafnast fátt á að smellhitta boltann á sweetspottið og fá boltaflugið sem maður ætlaði sér. Já svo er félagsskapurinn yfirleitt alveg ágætur!

Hver er uppáhalds golfvöllurinn þinn á Íslandi og erlendis?

Kiðjaberg og Vestmannaeyjar á Íslandi. Bonville í Ástraliu

Hver er uppáhalds kylfan í pokanum þínum?

Driverinn og 9 járnið.

Hefur þú slegið rangan bolta?

Já.

Hver er eftirminnilegasti golfhringur sem þú hefur spilað?

Ætli það sé ekki þegar ég spilaði -8 í Ástralíu. Hafði ekki komist í gegnum niðurskurð í 6 mánuði eða svo, fannst ekkert gaman í golfi á þessu mómenti og nennti ekki einu sinni að æfa mig í rigningunni daginn fyrir mót. Þetta var völlur sem maður þurfti helst að vera á braut en ég hitti einungis 2 brautir allan hringinn og þurfti endalaust að finna minn innri Seve Ballesteros til að koma boltanum á flötina. Einhvernveginn endaði ég hringinn á -8.

Hefur þú farið holu í höggi? Hvenær og hvar?

Já 1x… á 8. holu a Garðavelli í algjöru slagviðri. Man nú ekki dagsetninguna en held að ég hafi verið ca 17 ára. Hef ekki séð til sólu síðan þá.

Hvað er það fyndnasta eða skelfilegasta sem hefur gerst hjá þér á golfvellinum?

Ég tvísló vipp í beinni útsendingu fyrir framan alla Evrópu í Evrópumóti líða þegar ég og Birgir Leifur vorum að spila fjórmenning… ég hló svo mikið af skömm að ég náði nánast ekki að pútta en tókst að setja púttið í.

Drauma hollið (lifandi eða látnir), hverjir væru það?

Seve Ballesteros, Justin Thomas og Sergio Garcia.

Hraðaspurningar

Hvort segir þú oftar – golfbolti eða golfkúla?

Golfbolti.

Spilar þú með hvítum golfbolta?

Alltaf.

Uppáhalds tegund golfbolta?

Titleist

Morgun-, síðdegis- eða kvöldgolf?

Kvöldgolf.

Oftar golfbíll eða ganga?

Golfbíll, Ganga.

Hvort spilar þú meira á Íslandi eða erlendis?

Erlendis.

Ertu með birdie-pela í pokanum?

Nei.

Ferð þú í klúbbhúsið eftir hring – jafnvel í mat eða drykk?

Stundum.

Hvað vilt þú segja að lokum – og hvern skorar þú næst á í Yfirheyrslu Golfbolti.is?

Þetta er bara golf! Hættið að ofhugsa 😊.