Golfbolti.is
Fyrir alla kylfinga

Evrópumót golfklúbba í kvennaflokki fór fram á Green Resort Hrubá Borša golfvellinum í Slóvakíu dagana 2.-4. október. Golfklúbburinn Keilir varð Íslandsmeistari golfklúbba 2025 eftir frábæran úrslitaleik fyrr í sumar, og vann sér með því þátttökurétt í mótinu. Alls voru 19 golfklúbbar skráðir til leiks.

Elva María Jónsdóttir, Anna Sólveig Snorradóttir og Fjóla Margrét Viðarsdóttir skipuðu lið GK. Leiknir voru þrír hringir í höggleik og töldu tvö bestu skorin í hverri umferð. Guðrún Brá Björgvinsdóttir var á staðnum sem þjálfari og liðsstjóri, en hún var einnig í sigursveit GK í sumar. Einungis áhugakylfingar gátu tekið þátt í mótinu.

Smelltu hér fyrir úrslit mótsins

Eftir fyrsta hring mótsins var lið Keilis í 15. sæti, á átján höggum yfir pari. Fjóla Margrét lék á 80 höggum en Anna og Elva léku báðar á 82 höggum.