Tungumál Golfsins

by | Nov 3, 2025

Skor & árangur á holu

Ace (Ás)
Hola í höggi – farið í holu á einu höggi.

Albatros
Þrjú högg undir pari á holu.

Eagle (Örn)
Tvö högg undir pari.

Birdie (Fugl)
Eitt högg undir pari.

Par
Fjöldi högga sem góður kylfingur á að nota á holu eða allan völlinn.

Bogey (Skolli)
Eitt högg yfir pari.

Double Bogey (Tvöfaldur skolli)
Tvö högg yfir pari.

Score (Skor)
Heildarhöggafjöldi á holu eða velli.


Svæði á golfvellinum

Tee (Teigur)
Svæðið þar sem hola hefst.

Tee (Tí)
Litli pinninn sem boltinn er lagður á við upphafshögg.

Fairway (Braut)
Snöggslegið svæði milli teigs og flatar.

Green (Flöt)
Sléttasta svæðið í kringum holuna.

Foregreen (Svunta)
Svæðið rétt framan við flötina.

Rough (Kargi)
Grófara gras utan brautar.

Semi-rough 
Millisvæði milli brautar og karga

Bunker (Glompa)
Sandgryfja sem gerir leikinn erfiðari.

Penalty Area (Vítasvæði)
Svæði merkt rauðum eða gulum stikum. Oft vatn, en getur verið annað svæði sem felur í sér víti.

Bounds (Vallarmörk / Out of Bounds)
Svæði utan vallar.


Högg & sveiflur

Swing (Sveifla)
Heildar hreyfing kylfings við högg.

Backswing (Baksveifla)
Hreyfingin aftur áður en slegið er.

Forward Swing (Framsveifla)
Hreyfingin fram í gegnum boltann.

Drive (Dræf)
Langt upphafshögg, yfirleitt slegið af teig með driver.

Chip (Vippa)
Stutt högg þar sem boltinn fer lítið upp í loft og rúllar síðan.

Pitch
Lengri vippa – boltinn fer hærra og stoppar fyrr.

Put (Pútt)
Högg á flötinni í átt að holu.

Backspin (Bakspuni)
Snúningur aftur á boltann sem hægir á honum við lendingu.

Fade
Boltinn sveigir lítillega til hægri (hjá rétthentum).

Slice
Mikil sveigja til hægri.

Hook
Sveigja til vinstri (hjá rétthentum).

Break
Halli á flöt sem hefur áhrif á púttlínu.

Strike / Hit
Að slá boltann (aldrei “skjóta”).


Búnaður

Ball
Golfbolti.

Club (Kylfa)
kylfa sem notuð er til að slá boltann.

Driver
Lengsta kylfan, notuð af teig.

Pútter
Kylfa notuð á flöt.

Wedge (Fleygjárn)
Kylfa fyrir stutt og nákvæm högg.

Sand Wedge (Sandjárn)
Fleygjárn sérstaklega hentugt úr glompu.

Pin / Flagstick (Flaggstöng)
Stöngin sem markar holuna.

Cup
Holan sjálf.


Keppni & hlutverk

Golfer (Kylfingur)
Sá sem leikur golf.

Caddie (Kylfusveinn)
Aðstoðarmaður kylfings.

Forecaddie
Fylgist með hvar boltar lenda.

Marker (Ritari)
Skráir skor leikmanns.

Referee (Dómari)
Sér um að reglum sé fylgt.

Group / Ráshópur
Leikmenn sem fara saman út.

Match
Leikur milli aðila.

Match Play (Holukeppni)
Keppnisform þar sem hver hola er sjálfstæður leikur.

Fourball (Fjórleikur)
Tveir gegn tveimur – besti bolti hvors liðs telur.

Foursome (Fjórmenningur)
Tveir saman í liði og slá til skiptis.


Reglur & aðstæður

Fore!
Aðvörunar Hróp ef bolti gæti stefnt í átt að fólki.

Penalty (Víti)
Refsihögg samkvæmt reglum.

Free Drop (Frídropp)
Boltinn má falla vítalaust samkvæmt reglum.

Line (Lína)
Leið boltans, oftast notað um púttlínu.


Velkominn í leikinn.