PGA meistaramótið 2026 hefst á hinum sögufræga velli Aronimink Golf Club í Pennsylvaníu þar sem bestu kylfingar heims eru mættir til leiks. Mikil eftirvænting ríkir fyrir mótinu enda margir af heitustu kylfingum heims á toppi ferils síns þegar baráttan um Wanamaker bikarinn hefst í dag.
Völlurinn sjálfur gæti þó orðið ein helsta stjarna vikunnar. Aronimink, sem hannaður var af hinum goðsagnakennda Donald Ross árið 1928, hefur völlurinn verið endurgerður síðustu ár af Gil Hanse og Jim Wagner með það markmið að færa hann nær upprunalegri sýn Ross. Völlurinn er par 70 og rúmlega 7.300 yardar eða 6.675 metrar að lengd með stórum glompum, hröðum flötum og klassískri hönnun sem krefst mikillar nákvæmni.
Margir telja að þessi völlur henti Rory McIlroy afar vel, sérstaklega eftir að Norður-Írinn tryggði sér annan Masters titilinn í röð fyrr á árinu. Þá hafa bæði Cameron Young og Matt Fitzpatrick verið meðal heitustu leikmanna heims síðustu vikna með marga sigra að baki.
Scottie Scheffler hefur aðeins unnið eitt mót á árinu 2026, en þrjú mót í röð þar sem hann endaði í öðru sæti sýna að leikur hans er ekki langt frá toppnum. Þá verður einnig athyglisvert að sjá hvernig Aronimink stendur sig gegn bestu kylfingum heims, en síðast þegar PGA-mótaröðin heimsótti völlinn árið 2018 vann Keegan Bradley eftir umspil gegn Justin Rose á tuttugu höggum undir pari.
Rástímar fyrir fyrstu tvo keppnisdagana hafa verið birtir og ljóst að fjölmargar stórar stjörnur munu vekja mikla athygli þegar keppni hefst áí dag.





