Lydia Ko byrjaði á ótrúlegan hátt á fyrsta hring sínum á Ford Championship mótinu í Chandler þegar hún fékk fugl á fyrstu fjórum holunum – meðal annars með um 12 metra pútti á 13. holu.
Leikfélagi hennar, Lottie Woad, tók eftir nýjum pútter í pokanum hjá Ko, Scotty Cameron T12 frumgerð. Ko, sem er þekkt fyrir að skipta sjaldan um búnað, sagði einfaldlega: „Ég setti fyrsta púttið, þannig þetta byrjaði vel.“
Eftir draumabyrjun kviknaði möguleiki á 59 höggum – tölu sem aðeins Annika Sörenstam hefur náð í sögu LPGA Tour.
Ko hélt ró sinni allan hringinn og sagði að hún hefði verið „í flæðinu“, þar sem hún einblíndi eingöngu á hvert högg fyrir sig. Eina bakslagið var par á 7. holu þar sem fuglapúttið rétt misfórst.
Hún endaði þó hringinn á glæsilegan hátt með fuglum á síðustu tveimur holunum og skilaði besta skori ferilsins á vellinum Cattail á Whirlwind Golf Club.
Ko sló 9 brautir og hitti 17 flatir í höggi á leið sinni að einum besta hring ferilsins – með nýja pútterinn sem gæti reynst happafengur.




