Englendingurinn Matthew Fitzpatrick, tryggði sér sigur á RBC Heritage mótinu eftir spennuþrunginn bráðabana gegn Scottie Scheffler.
Fitzpatrick var í lykilstöðu þegar hann kom að 18. holu með eins höggs forystu en mistök í lokin með misheppnuðu vippi leiddi til skolla og því þurfti að skera úr um sigurinn í bráðabana. Þar sýndi hann hins vegar styrk sinn.
Leikin var 18.hola á ný og átti Fitzpatrick þar eflaust besta högg mótsins, fjögurra járns högg af 209 metra færi og lenti um 4 metra frá pinna og setti niður fuglapúttið af öryggi. Scheffler náði ekki að svara og sigurinn var því í höfn.
Þetta er fjórði sigur Fitzpatrick á PGA Tour og annar hans á þessu móti, eftir að hafa einnig sigrað árið 2023. Hann hefur nú unnið tvö mót á skömmum tíma en hann fagnaði einnig sigri á Valspar Championship fyrr á árinu.
Fitzpatrick svaraði áhorfendum sem höfðu púað á hann á hringnum með því að leggja hönd að eyra eftir sigurinn, skýr skilaboð eftir spennuþrungna lokaholu. Atvikið rifjaði upp ófagrar senur frá Ryder Cup mótinu í september síðastliðnum á Bethpage Black, þar sem Fitzpatrick og liðsfélagar hans urðu fyrir miklum truflunum og móðgunum úr stúkunni.
Scheffler, sem lék stöðugt og gerði aðeins einn skolla um helgina, viðurkenndi yfirburði Fitzpatrick:
„Hann átti sigurinn fyllilega skilið og spilaði einfaldlega frábært golf.“
— Golfbolti.is




