Íslenskir kylfingar náðu góðum árangri á opnunarmóti LET Access mótaraðarinnar, Madaëf Golfs Ladies Open, sem fram fór á Royal Golf de Fes í Marokkó.
Hulda Clara Gestsdóttir stóð upp úr íslenska hópnum og endaði í 8. sæti, eftir stöðugt og öruggt spil alla mótsdagana (72-73-71). Þetta er afar sterk byrjun hjá Huldu á sínu fyrsta tímabili sem atvinnukylfingur og staðfestir að hún er tilbúin í toppbaráttu.
Andrea Bergsdóttir endaði í 29. sæti eftir frábæran lokahring þar sem hún lék á 69 höggum og klifraði upp töfluna ( 79-72-69). Ragnhildur Kristinsdóttir hafnaði í 42. sæti, lék á (77-74-72) og sýndi stöðuga bætingu.
Glæsilegur árangur hjá þeim Huldu Clöru, Andreu og Ragnhildi, hlökkum til að fylgjast með þeim á næstu mótum.




