PGA of America hefur vikið forseta sínum, Don Rea, úr starfi eftir langvarandi gagnrýni í kjölfar Ryder Cup keppninnar sem fram fór á Bethpage Black vellinum í New York í fyrra.
Í tilkynningu frá samtökunum sagði að ákvörðunin hefði verið tekin eftir „röð mála yfir ákveðið tímabil“ sem hefðu samanlagt reynst skaðleg fyrir samtökin. Varaforsetinn, Nathan Charnes, tekur tímabundið við embættinu þar til nýr forseti verður kjörinn síðar á árinu.
Rea sætti harðri gagnrýni vegna ummæla sinna á lokadegi Ryder Cup þar sem hann virtist gera lítið úr óviðeigandi hegðun áhorfenda gagnvart evrópska liðinu. Sérstaklega vakti athygli þegar hann sagði að slíkt gæti jafnvel hjálpað leikmönnum fremur en að hafa neikvæð áhrif á þá.
Athygli vakti einnig að Rea sagðist ekki hafa heyrt um niðrandi ummæli í garð Rory McIlroy, sem lék fyrir Evrópuliðið, þrátt fyrir að atvikið hefði verið mikið til umræðu á meðan mótinu stóð.
Daginn eftir sendi Rea þó afsökunarbeiðni til félagsmanna PGA of America þar sem hann viðurkenndi að orð sín hefðu verið túlkuð neikvætt og skaðað bæði samtökin og hann sjálfan. McIlroy staðfesti síðar að Rea hefði einnig haft persónulega samband við sig til að biðjast afsökunar.
Ekki bætti úr skák að myndband fór í dreifingu þar sem Rea sást syngja „Lose Yourself“ með Eminem í karókípartíi á meðan umræðan um hegðun áhorfenda stóð sem hæst. Þá vakti einnig furðu þegar hann sagði við bikarafhendinguna að Evrópumenn hefðu „varið“ Ryder Cup bikarinn, þrátt fyrir að þeir hefðu unnið mótið með 15-13 sigri.
Frá því í febrúar hafði Rea verið færður til í starfi innan samtakanna og sinnt verkefnum tengdum félagsmönnum PGA of America. Á nýafstöðnu PGA Championship móti sást hann lítið sem ekkert opinberlega, sem ýtti undir vangaveltur um framtíð hans innan samtakanna.
Brottrekstur hans markar tímamót hjá PGA of America og undirstrikar hversu eldfimt Ryder Cup umhverfið er orðið, bæði innan vallar sem og utan.





