Golfbolti.is
Fyrir alla kylfinga

Frábær árangur hjá Guðrúnu Brá – hafnaði í þriðja sæti í Suður-Afríku

by | Feb 22, 2026

Guðrún Brá Björgvinsdóttir hafnaði í 3. sæti á NTT Data Pro-Am mótinu sem lauk í gær á Fancourt Golf Estate golfsvæðinu í George í Suður-Afríku. 

Mótið sem er hluti af Sunshine Ladies mótaröðinni var stytt í tvo hringi vegna veðurs og lék Íslandsmeistarinn hringina tvo á 73 og 72 höggum og var á einu höggi undir pari í heildina.