Íslenskir kylfingar héldu áfram að láta til sín taka á Sand Valley Open í Póllandi, þar sem þeir Logi Sigurðsson og Sigurður Arnar Garðarsson náðu frábærum árangri og enduðu jafnir í 8. sæti mótsins (-6).
Sigurður Arnar (GKG ) var í toppbaráttu frá fyrsta degi og sýndi mikinn stöðugleika alla mótsdagana. Hann byrjaði mótið af krafti og hélt sér stöðugt í fremstu röð kylfinga. Hringina þrjá fór hann á 69-70-71 höggi.
Logi Sigurðsson (GS) kom sterkur inn og kláraði mótið af miklu öryggi, sem skilaði honum upp töfluna og í topp 10. Logi lék hringina þrjá á 73-70-67 höggum.
Aron Snær Júlíusson ( GKG) lék á 73 og 76 höggum (+5)
Dagbjartur Sigurbrandsson (GR) lék á 74 – 73 (+3)
Daníel Ísak Steinarsson (GK) lék á 81-78 (+15)
Hlynur Bergsson (GKG) lék á 71 – 80 (+7)
Skúli Gunnar Ágússtson (GKG) 79 – 74 (+9)
Næsta mót hjá íslensku kylfingunum sjö verður á sama svæði og hefst á morgun mánudaginn 13.apríl. Mótið hefst kl. 04:50 að íslenskum tíma í fyrramálið




