Golfbolti.is
Fyrir alla kylfinga

Golfsamband Íslands óskar eftir tilnefningum um sjálfboðaliða ársins 2025. Valið á sjálfboðaliða ársins hefur farið fram árlega frá 2014 og er hluti þess að undirstrika hve mikilvægt sjálfboðaliðastarfið er fyrir hreyfinguna.

Sjálfboðaliðar settu meðal annars sinn svip á Íslandsmótið í golfi í ár. Þangað mættu um 120 sjálfboðaliðar sem sinntu ýmsum störfum. Í myndbandi hér að neðan sjá stutta umfjöllin Golfklúbbsins Keilis frá starfi sjálfboðaliða á mótinu.

Golfklúbbar og kylfingar eru hvattir til að senda tilnefningar á á netfangið soley@golf.is

Skilafrestur er mánudagurinn 20. október 2025.