Golftímabilið á Íslandi er farið af stað og nokkrir vellir þegar opnir fyrir kylfinga. Veðuraðstæður síðustu vikna hafa flýtt fyrir opnunum víða um land, þó enn sé beðið með að opna velli hér á höfuðborgarsvæðinu sem og á landsbyggðinni.
Meðal þeirra valla sem þegar hafa opnað eru:
- Húsatóftuvöllur – Grindavík 1.maí
- Kálfatjarnarvöllur – Vatnsleysu
- Kirkjubólsvöllur – Sandgerði
- Leiran – Golfklúbbur Suðurnesja
- Selsvöllur – Flúðum 1.maí
- Strandavöllur – Hella
- Vestmannaeyjavöllur – Vestmannaeyjar
- Þorláksvöllur – Þorlákshöfn
- Þverárvöllur – Hellishólum
Á höfuðborgarsvæðinu bíða kylfingar enn eftir opnun valla, en vonir standa til að þeir opni um og upp úr miðjum maí, ef veðrið heldur áfram að vera hagstætt og að vellirnir nái sér vel eftir veturinn.
Að venju munu fleiri vellir opna jafnt og þétt á næstu vikum og má gera ráð fyrir að megnið af golfvöllum landsins verði komnir í fulla notkun í lok maí eða byrjun júní.
Kylfingar sem vilja fylgjast með stöðunni og sjá hvaða vellir eru opnir hverju sinni eða bóka rástíma geta nálgast allar helstu upplýsingar á Rástímar.is.




