Golfsumarið er formlega hafið og með því fer GSÍ mótaröðin af stað þar sem fremstu kylfingar landsins keppa um stærstu titla íslenska golfsins. Sjö mót eru á dagskrá í sumar og safna kylfingar stigum í hverju móti fyrir sig, en Íslandsmótin í holukeppni og höggleik vega þyngst í stigakeppninni.
Fyrsta mót sumarsins, Reykjanesmót GS og GSG, hófst í morgun föstudaginn 15. maí og markar upphaf keppnistímabilsins hjá bestu áhugakylfingum landsins. Leiknar verða 54 holur yfir þrjá keppnisdaga þar sem fyrsti og þriðji hringurinn fara fram á Hólmsvelli hjá Golfklúbbi Suðurnesja, en annar hringurinn verður leikinn á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis.
Alls eru 91 keppandi skráðir til leiks frá 14 golfklúbbum víðs vegar af landinu. GR sendir flesta keppendur til leiks eða 21 alls, á meðan GKG er með 19 kylfinga í mótinu og Keilir með 13.
Í karlaflokki eru 73 keppendur og þar vekur athygli hversu sterkur hópurinn er. Meðalforgjöf keppenda er +0,36 og alls eru 44 kylfingar með forgjöf núll eða lægri. Forgjafarlægstu kylfingarnir eru Tómas Eiríksson Hjaltested, Kristófer Orri Þórðarson og Axel Bóasson sem sigraði á Landsmóti í golfhermum fyrr í mánuðinum.
Tómas er ríkjandi stigameistari GSÍ mótaraðarinnar og verður án efa einn af stóru nöfnum sumarsins. Hann hefur undanfarin ár verið í háskólagolfinu í Bandaríkjunum og stefnir nú að því að bæta við öðrum stigameistaratitli.
Í kvennaflokki eru 18 keppendur. Þar eru Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir og Eva Kristinsdóttir forgjafarlægstar.
Perla Sól varð Íslandsmeistari í golfi árið 2022 og vann Guðfinnubikarinn á Íslandsmótinu í fyrra fyrir lægsta skor áhugakylfings. Þá kemur Eva Kristinsdóttir sterk inn í sumarið eftir sigur á Landsmóti í golfhermum fyrr í mánuðinum.
Eftir Reykjanesmótið tekur við þétt og spennandi dagskrá í sumar. Hvaleyrarbikarinn og Korpubikarinn verða áfram meðal stærstu móta mótaraðarinnar, auk tveggja GSÍ móta á Þorlákshöfn og Leirdalsvelli hjá GKG.
Hápunktur sumarsins verður síðan Íslandsmótið í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli þar sem Íslandsmeistarar í golfi verða krýndir eftir 72 holu höggleik. Mótið verður jafnframt sýnt í beinni útsendingu á RÚV.
Það verður spennandi að fylgjast með öllum þessum frábæru kylfingum í sumar.





