Íslenski atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefur leik á morgun á Investec SA Women’s Open mótinu sem fram fer á hinum sögufræga Royal Cape Golf Club í Höfðaborg í Suður-Afríku. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna, Ladies European Tour (LET).
Guðrún Brá hefur leik kl. 08:50 að staðartíma, sem jafngildir 06:50 að íslenskum tíma. Hún leikur í holli með Charlotte Millard frá Suður-Afríku og Terezu Melecku frá Tékklandi.
Keppnin stendur yfir í fjóra daga, dagana 23.–26. apríl. Að loknum tveimur keppnisdögum fer fram niðurskurður þar sem efstu kylfingarnir halda áfram keppni um helgina.
Heildarverðlaunafé mótsins nemur 350.000 evrum og dregur mótið að sér sterkan hóp keppenda víðs vegar að úr heiminum. Gert er ráð fyrir að um 120–130 kylfingar taki þátt, frá tugum landa, enda er mótið samvinnuverkefni LET og Sunshine Ladies Tour.
Royal Cape golfvöllurinn er einn elsti og virtasti golfvöllur Afríku og getur reynst keppendum krefjandi, ekki síst vegna vindasams veðurfars sem oft setur svip sinn á leikinn við rætur Table Mountain.
Guðrún Brá hefur á undanförnum misserum fest sig í sessi á mótaröðinni og verður spennandi að fylgjast með gengi hennar í þessu stórmóti vorsins á LET.




