Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur keppni á nýju háskólagolfsári þegar The Hayt Invitational hefst á morgun á Sawgrass Country Club vellinum í Ponte Vedra Beach í Flórída.
Mótið er eitt sterkasta háskólamót ársins í bandarísku háskólagolfi þar sem mörg af bestu liðum landsins taka þátt. Keppt er í 54 holu höggleik yfir þrjá daga.
Skóli Gunnlaugs, LSU, situr í 6. sæti á styrkleikalista háskólaliða á þessu skólaári.
Gunnlaugur Árni lauk síðasta ári á frábærum nótum þegar hann sigraði sterkt háskólamót, þar sem sex af 20 sterkustu háskólaliðum Bandaríkjanna tóku þátt. Enginn íslenskur kylfingur hefur áður unnið jafn sterkt áhugamannamót.
Gunnlaugur situr nú í 8. sæti heimslista áhugakylfinga og skrifaði nýlega undir samning við eina stærstu umboðsskrifstofu heims og má nefna að Gunnlaugur Árni lauk síðasta ári á frábærum nótum þegar hann sigraði sterkt háskólamót, þar sem sex af 20 sterkustu háskólaliðum Bandaríkjanna tóku þátt. Enginn íslenskur kylfingur hefur áður unnið jafn sterkt áhugamannamót.
Gunnlaugur situr nú í 8. sæti heimslista áhugakylfinga og skrifaði nýlega undir samning við eina stærstu umboðsskrifstofu heims sem eru með til að mynda Scottie Scheffler, besti kylfingur heims, ásamt Brooks Koepka og Dustin Johnson og fleiri.





