Ástralski kylfingurinn Hannah Green heldur áfram ótrúlegri byrjun á tímabilinu 2026 en hún sigraði á JM Eagle LA Championship mótinu á LPGA mótaröðinni eftir spennuþrunginn bráðabana um síðustu helgi.
Staða Green leit ekki vel út þegar leið á lokahringinn. Hún var á tímabili sex höggum á eftir forystunni, eftir að Kim Sei-young sló inn örn á 11. holu.
Green gaf hins vegar ekkert eftir. Hún svaraði með því að fá fimm fugla á sex holum, minnkaði muninn hratt og náði að jafna leikinn (-17) áður en hringurinn kláraðist og endaði í bráðabana.
Green tryggði sér sigurinn með því að setja niður um 4 metra fuglapútt í bráðabana við þær Kim Sei -young og og Im Jin-hee og vann þar með mótið í þriðja sinn á fjórum árum.
Sigurinn er hennar fjórði á tímabilinu, en jafnframt hefur hún unnið Women’s Australian Open, Women’s World Championship og Australian WPGA Championship á árinu.
Mótið var einnig sögulegt fyrir hækkun á verðlaunafé, sem fór upp í 4,75 milljónir dollara eða um 580 millj. ísk., það hæsta utan risamótanna. Green tók heim rúmlega um 700 þúsund dollara eða 85,6 milljónir íslenskra króna fyrir sigurinn.
Næst tekur við fyrsta risamót ársins, Chevron Championship, sem hefst nú í vikunni í Houston,Texas – og ljóst að Green mætir þangað full sjálfstrausti
— Golfbolti.is





