Það hefur lengi verið deilt um hvort aukin högglengd í golfi sé góð eða slæm þróun fyrir íþróttina. Sumir telja að atvinnukylfingar slái boltann orðið allt of langt á meðan aðrir segja að lengri högg einfaldlega gera golfið meira spennandi.
Eitt er þó óumdeilt: lengri upphafshögg gera golfið auðveldara.
Þegar kylfingar eiga styttra inn á flatirnar með styttri kylfur í höndunum aukast líkurnar á fuglum og lægri skorum. Þess vegna eru bæði atvinnu- og áhugakylfingar stöðugt að leita leiða til að bæta högglengd sína.
Ný ársskýrsla frá Arccos Golf sýnir að meðal karlkylfingur slær með Driver af teig um 224 yarda, sem jafngildir um 205 metrum. Meðal kvennkylfingur slær hins vegar um 176 yarda, eða tæplega 161 metra skv. rannsókninni.
Gögnin byggja á yfir milljarða skráðra högga frá kylfingum um allan heim og gefa áhugaverða mynd af þróuninni hjá almennum golfurum.
Þó atvinnukylfingar haldi áfram að slá lengra með hverju árinu virðist þróunin vera önnur hjá almenningi. Meðallengd almennra golfara hefur minnkað lítillega tvö ár í röð samkvæmt skýrslunni.
Á síðustu árum hafa fleiri kylfingar farið að nýta sér sérstakar hraðaæfingar, líkamsrækt og mælitækni til að bæta sveifluhraða og högglengd og þannig skapað sér ákveðið forskot á vellinum.
Sérfræðingar eru sammála um að jafnvel nokkrar metrar til viðbótar geti haft veruleg áhrif á skor, sérstaklega þegar kemur að því að slá styttri járnum inn á flatirnar og skapa fleiri fuglafæri.
Fyrir flesta kylfinga er því ljóst að aðeins meiri lengd getur skipt meira máli en margir gera sér grein fyrir.





