Mikil spenna ríkir fyrir Kroger Queen City Championship mótinu á LPGA-mótaröðinni sem hefst á fimmtudag á hinum glæsilega Maketewah Country Club í Cincinnati í Ohio. Þetta verður í fimmta sinn sem mótið fer fram en nú í fyrsta sinn á þessum sögufræga Donald Ross-velli.
Sterkasti kylfingahópur heims er mættur til leiks og athygli vekur sérstaklega að efstu tvær konur heimslistans, Nelly Korda og Jeeno Thitikul, verða saman í mótinu í fyrsta skipti síðan á Chevron-meistaramótinu fyrr á árinu.
Áhugaverðasti ráshópur fyrstu tveggja keppnisdaganna verður án efa holl Nelly Korda, Jeeno Thitikul og Lydia Ko. Þær hefja leik í dag klukkan 16:48 á íslenskum tíma og verður áhugavert að fylgast með þessu holli. Korda hefur verið óstöðvandi á tímabilinu með þrjá sigra og hefur ekki endað neðar en í öðru sæti á árinu. Hún kemur til Cincinnati eftir tvo sigra í röð, á Chevron Championship og Riviera Maya Open.
Thitikul svaraði hins vegar með sterkum hætti um síðustu helgi þegar hún varði titil sinn á Mizuho Americas Open og vill nú endurheimta efsta sætið á heimslistanum. Þá snýr Lydia Ko aftur á mótið þar sem hún sigraði árið 2024 þegar keppt var á TPC River’s Bend vellinum.
Annar áhugaverður ráshópur samanstendur af Charley Hull, Chizzy Iwai og Ruoning Yin. Hull er titilvörður mótsins eftir sigur sinn árið 2025 og hefur þegar unnið eitt mót á Ladies European Tour á þessu ári. Yin kemur hins vegar sjóðheit til leiks eftir tvö önnur sæti í röð á LPGA-mótaröðinni.
Þá verður einnig spennandi að fylgjast með holli Sei Young Kim, Haeran Ryu og Ina Yoon, auk þess sem tveir stórmeistarar verða saman í holli þegar Patty Tavatanakit leikur með Mao Saigo og Jin Young Ko síðdegis í dag.
Allt stefnir því í stórskemmtilegt LPGA-mót þar sem margar af bestu kylfingum heims munu berjast um sigurinn á nýjum og krefjandi keppnisvelli í Cincinnati.




