Lottie Woad heldur áfram að festa sig í sessi sem ein skærasta stjarna kvennagolfsins eftir glæsilegan sigur á Kroger Queen City Championship mótinu á LPGA-mótaröðinni um helgina.
Enski kylfingurinn, sem er aðeins 22 ára gömul, lék lokahringinn á einu höggi undir pari í erfiðum vindaaðstæðum á Maketewah Country Club vellinum í Cincinnati og tryggði sér tveggja högga sigur á suðurkóreska kylfingnum Haeran Ryu.
Woad lauk mótinu á tólf höggum undir pari eftir hringi upp á 70, 64, 65 og 69 höggum og vann þar með sinn annan titil á LPGA-mótaröðinni aðeins í 19. móti sínum sem atvinnukylfingur.
Sigurinn er sérstaklega athyglisverður í ljósi þess að Woad komst ekki í gegnum niðurskurðinn í síðasta móti eftir mjög slakt púttspil. Lausnin reyndist einföld en áhrifarík; nýtt grip á pútterinn og löng æfingahelgi á púttflötinni í New Jersey.
„Ég fann strax að pútterinn lá betur í höndunum eftir breytinguna,“ sagði Woad eftir sigurinn.
Lokakaflinn á sunnudaginn var þó sannkallað meistaragolf. Woad setti niður mikilvægt fuglapútt á 17. holu úr rúmlega sex metra færi sem gaf henni tveggja högga forskot fyrir lokaholuna og slökkti nánast alla spennu í mótinu.
Woad hefur verið á hraðri leið upp heimslistann undanfarin misseri. Hún varð heimsmeistari áhugakylfinga, vann Augusta National Women’s Amateur árið 2024 og sigraði á Women’s Scottish Open í fyrsta atvinnumóti sínu á síðasta ári.
Nú virðist hún hins vegar vera farin að sýna að hún geti reglulega unnið á stóra sviðinu.
Það vakti einnig athygli að kylfusveinn hennar, David Taylor, verðlaunar bæði sjálfan sig og Woad með gúmmelaði fyrir hvern fugl sem hún fær á hringnum. Eftir fjóra fugla á lokadeginum beið þeirra því lítið sælgætispartý og mögulega nýtt húðflúr fyrir Taylor, en hann hafði lofað Woad að hún mætti velja næsta tattú ef hún ynni mótið.
Á meðan Woad fagnaði sigri endaði heimsnúmer eitt, Nelly Korda, jöfn í áttunda sæti eftir góðan lokahring upp á 67 högg.




