Korpubikarnum í samvinnu við First Water lauk nú rétt í þessu á Korpúlfsstaðavelli eftir þrjá keppnisdaga þar sem margir af sterkustu kylfingum landsins áttust við í öðru móti GSÍ mótaraðarinnar. Að lokum voru það Aron Snær Júlíusson úr GKG og Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR sem stóðu uppi sem sigurvegarar eftir afar sannfærandi frammistöðu.
Í kvennaflokki var Ragnhildur Kristinsdóttir í sérflokkii. Atvinnukylfingurinn úr Golfklúbbi Reykjavíkur lék lokahringinn á glæsilegum 66 höggum, sex undir pari, og tryggði sér sigur með fimm högga mun.
Ragnhildur lauk keppni á samtals sex höggum undir pari eftir hringi upp á 72, 72 og 66 högg. Lokahringurinn var einn sá besti sem leikinn var á mótinu og undirstrikaði styrk hennar þegar mest á reyndi.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR endaði í öðru sæti á einu höggi undir pari samtals, en Fjóla Margrét Viðarsdóttir úr GS og Eva Kristinsdóttir úr GM deildu þriðja sætinu á tveimur höggum yfir pari.
Guðrún Birna Snæþórsdóttir úr Keili hafnaði í fimmta sæti eftir góða keppni og lauk mótinu á sex höggum yfir pari.
Í karlaflokki var baráttan öllu jafnari. Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar hóf lokadaginn með tveggja högga forskoti eftir stórkostlegan annan hring á 65 höggum.
Þrátt fyrir að Aron Emil Gunnarsson frá Selfossi hafi sett mikla pressu á hann með frábærum opnunarhring á 63 höggum tókst Aroni Snæ að halda forystunni allt til enda. Hann lék lokahringinn á 68 höggum og sigraði á samtals tíu höggum undir pari.
Aron Emil varð annar á átta höggum undir pari, aðeins tveimur höggum á eftir sigurvegaranum.
Veigar Heiðarsson úr Golfklúbbi Akureyrar hafnaði í þriðja sæti á þremur höggum undir pari eftir stöðuga spilamennsku alla helgina.
Þrír kylfingar deildu síðan fjórða sætinu á einu höggi undir pari, þeir Kristófer Orri Þórðarson úr GKG, Böðvar Bragi Pálsson úr GR , Sigurður Bjarki Blumenstein úr GR og Jóhann Frank Halldórsson úr GR.
Korpubikarinn gaf góða mynd af þeim styrk sem er til staðar meðal fremstu kylfinga landsins. Ragnhildur Kristinsdóttir og Aron Snær Júlíusson fögnuðu verðskulduðum sigrum, en um leið sýndu fjölmargir keppendur að baráttan um efstu sætin verður hörð og verður því áhugavert að fylgjast með framhaldinu á GSÍ mótaröðinni í sumar.
golfbolti.is





