Það leit allt út fyrir að sigurinn á Charles Schwab Challenge myndi enda hjá öðrum kylfingi þegar aðeins fjórar holur voru eftir. Þá var Russell Henley þremur höggum á eftir forystunni og virtist úr leik í baráttunni um titilinn.
En golfið getur verið óútreiknanlegt.
Henley átti einn magnaðasta endasprett ársins á PGA-mótaröðinni þegar hann fékk fjóra fugla í röð á lokakafla hringsins og tryggði sér síðan sigur í bráðabana gegn Eric Cole á Colonial Country Club í Texas.
Henley hafði bjargað pari á 15. holu til að halda sér inni í mótinu. Það reyndist upphafið að mögnuðum kafla.
Hann setti niður rúmlega fjögurra metra fuglapútt á 16. holu, fylgdi því eftir með öðrum fugli á 17. holu og jafnaði síðan forystuna með glæsilegu fuglapútti á þeirri 18.
Með því tryggði hann sér sæti í bráðabana gegn Cole, sem hafði leitt mótið stóran hluta dagsins.
Þegar þeir sneru aftur á 18. teig í bráðabananum hélt Henley áfram þar sem frá var horfið. Hann sló upp að fánanum og setti niður um einn og hálfan metra fuglapútt á meðan Cole missti sinn fugl.
„Ég er eiginlega orðlaus,“ sagði Henley eftir sigurinn.
„Þó ég hafi verið að spila vel í mörg ár þá minnir golfið mann alltaf á hversu erfitt það er að vinna. Þess vegna eru sigrarnir svo sérstakir.“
Þetta er sjötti sigur Henley á PGA Tour og sá stærsti hjá honum frá því hann vann Arnold Palmer Invitational fyrr á ferlinum.
Fyrir sigurinn fékk hann rúmlega 1,7 milljónir dala í verðlaunafé, hinn hefðbundna skoska köflótta sigurjakka mótsins og sérútbúinn Jeep Scrambler-jeppa.
Bandaríkjamaðurinn Eric Cole hafði leitt mótið inn í lokahringinn og var í forystu stóran hluta dagsins. Hann hafði ekki fengið tvöfaldan skolla í yfir 300 holur þegar hann missti högg á níundu holu, en hélt þó áfram að berjast fram á síðasta pútt.
Þrátt fyrir að hafa leikið sitt 120. PGA Tour-mót hefur Cole enn ekki náð sínum fyrsta sigri á mótaröðinni.
Sigur Henley er enn ein áminningin um hversu djúp samkeppnin er á PGA-mótaröðinni. Þegar leið á síðasta klukkutíma mótsins voru nokkrir kylfingar í raunhæfri sigurbáráttu, þar á meðal Ben Griffin, sem komst næst því að jafna forystuna með frábærum lokahring.
Það var þó Russell Henley sem stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa skrifað einn eftirminnilegasta lokakafla tímabilsins hingað til, fjóra fugla í röð þegar mest lá við.





