Íslenski atvinnukylfingurinn Sigurður Arnar Garðarsson (GKG) lauk leik á afar sannfærandi hátt á Sand Valley Spring Series Final mótinu í Póllandi í dag.
Sigurður lék lokahringinn á 70 höggum, þar sem hann skilaði fjórum fuglum og aðeins einum skolla og endaði mótið á -16 höggum aðeins fimm höggum frá efsta sæti. Það skilaði honum í 9. sæti í sterku alþjóðlegu móti.
Sigurður hóf leik á mótaröðinn og endaði í 8. sæti á Sand Valley Open, hann náði ekki niðurskurði á ECCO Tour Sand Valley Masters, en svaraði síðan með krafti og tryggði sér 9 sætið á Sand Valley Spring Serial Final mótinu.
Sjá má stöðuna hjá íslensku keppendunum á stigalistanum á Ecco mótaröðinni hér
— Golfbolti.is




