Íslenskir afrekskylfingar halda áfram að láta að sér kveða á Sand Valley Spring Series Final mótinu á Sand Valley Golf Resort í Póllandi, þar sem tveir fyrstu hringirnir eru að baki og úrslitin fara að skýrast.
Sigurður Arnar Garðarsson er fremstur Íslendinga eftir afar sannfærandi leik og situr í 5. sæti á -13, aðeins fjórum höggum frá efsta manni.
Hann hóf mótið á traustum 70 högga hring (5 fuglar, 2 skollar), en á öðrum degi small allt saman þegar hann lék á 63 höggum, með 8 fuglum og einum erni. Sá hringur er meðal þeirra bestu á mótinu hingað til og setur hann í sterka stöðu fyrir lokahringinn.
Hlynur Bergsson var hársbreidd frá því að komast í gegnum niðurskurð og lauk leik á -4, einu höggi frá niðurskurði. Hann lék á 74 og 68 höggum seinni hringinn.
Logi Sigurðsson lék á -3 (72 og 71 högg) og missti einnig naumlega af niðurskurði
- Skúli Gunnar Ágústsson: -2 (72, 72)
- Dagbjartur Sigurbrandsson: +2 (72, 76)
- Aron Snær Júlíusson: +1 (71, 76) – þar af einn örn á fyrsta hring
- Daníel Ísak Steinarsson: +4 (79, 71)
Lokahringurinn verður leikinn á morgun og verður spennandi að fylgjast með Sigurði Arnari í toppbaráttunni en hann hefur leik í fyrramálið klukkan 7.06 á íslenskum tíma.
Mótið er jafnframt mikilvægur hluti af Nordic Golf League mótaröðinni, þar sem dýrmæt stig eru í húfi í baráttunni um sæti á HotelPlanner Tour.





