Þriðji hringur á Masters 2026 breytti stöðunni verulega fyrir lokadaginn. Cameron Young lék á glæsilegum 65 höggum (-7) og fór upp fyrir Rory McIlroy, sem missti forskot sitt með 73 högga hring.
Young var nánast óstöðvandi með átta fugla og einn skolla og fer inn í lokahringinn í forystu. McIlroy, sem hafði sex högga forskot eftir tvo hringi, er nú kominn aftur í harða baráttu.
Sam Burns er einnig kominn í toppbaráttuna en hann átti stöðugan leik og var án skolla og endaði á 68 höggum.
Tvöfaldur Master meistarinn Scottie Scheffler minnti á sig með 65 höggum og er mættur aftur í titilslaginn.
Athyglisvert er að Li sem var næstum því hættur við þátttöku á föstudegi vegna veikinda – en er nú allt í einu kominn í stöðu til að berjast um sigur , hann lék á 69 höggum og er sjö undir pari.
Shane Lowry (-9) er einnig í sterkri stöðu eftir að hafa fengið holu í höggi, og Jason Day (-8) er skammt undan.
Allt er opið fyrir lokahringinn á Augusta




