Golfbolti.is
Fyrir alla kylfinga

Golfheimurinn fór á hliðina þegar Tiger Woods lét þau orð falla í sjónvarpsviðtali sem kveiktu vonarneista hjá aðdáendum um allan heim: “hvort að hann verði á staðnum“ þegar Masters Tournament fari fram á Augusta National Golf Club.
Þó hann hafi ekki staðfest enn beint að hann muni keppa, gaf hann það sterklega í skyn og að Masters sé enn stór hluti af plönum hans.

Í viðtalinu ræddi Woods meðal annars um heilsuna og endurhæfinguna – Hann viðurkenndi að líkaminn væri ekki sá sami og áður, sérstaklega eftir ökklaskurðaðgerð og bakvandamál síðustu ára. Hann sagðist þó vera að æfa markvisst og taka eitt skref í einu. Tiger sagði að Augusta væri „sérstakur staður“ og að hann myndi aldrei afskrifa möguleikann á að keppa þar svo lengi sem hann telji sig geta verið samkeppnishæfan. Þrátt fyrir takmarkaðan leik síðustu tímabil er hungrið enn til staðar. Hann sagðist ekki mæta á mót nema hann telji sig eiga raunhæfan möguleika á að berjast um titil.

Woods hefur unnið Masters fimm sinnum og átti eina magnaðustu endurkomu íþróttasögunnar þegar hann sigraði þar árið 2019. Sú saga lifir enn sterkt í huga golfáhugafólks.

Stóra spurningin er hvort líkaminn leyfi honum að ganga fjóra hringi á krefjandi Augusta-vellinum. Woods hefur sjálfur sagt að ganga 72 holur á risamóti sé stærsta áskorunin.

En eitt er víst, ef Tiger mætir á rásstað, breytist Masters strax í stærstu íþróttafrétt vorsins.