Golfbolti.is

Yfirheyrslan

Rúnar Freyr Gíslason
Borgarfulltrúi

Golfklúbbur

Nesklúbburinn

Forgjöf

20,0

Hvenær byrjaðir þú að spila golf?

Líklega í kringum tvítugt, þá fór ég að fikta við þetta. Gekk svo í golfklúbbinn Odd í kringum 2000 en var nánast hættur þegar ég fékk delluna aftur fyrir nokkrum árum. En einhvernveginn fer forgjöfin ekki niður….

Hvað er það sem þér finnst best við golf?

Félagsskapurinn, keppnin, góðu höggin, útiveran, landslagið. Eiginlega bara allt. Líka hvað maður er alltaf að eiga við sjálfan sig og hausinn á sér.

Hver er uppáhalds golfvöllurinn þinn á Íslandi og erlendis?

Ég á fjóra uppáhalds: Grafarholtið, Oddur, Keilir og Jaðarsvöllur á Akureyri. Allir frábærir. Ef ég yrði að nefna einn væri það líklega Grafarholtið.

Hver er uppáhalds kylfan í pokanum þínum?

Smellhitt sjöa á góðum degi.

Hefur þú slegið rangan bolta?

Ójá, spurðu Stebba Jó. Ég tapaði holunni.

Hver er eftirminnilegasti golfhringur sem þú hefur spilað?

1. júlí 2023, Meistaramót Nesklúbbsins: 80 högg, 43 punktar. Góður dagur. Svo verð ég að minnast á hring sem við fórum á Trump Turnberry (Ailsa), ég, Logi Bergmann og Árni Freyr hjá Eagle Golfferðum. Það er ótrúlegur völlur, algjörlega magnaður. Flottasti völlur sem ég hef leikið. Bókið ykkur ferð þangað núna.

Hefur þú farið holu í höggi? Hvenær og hvar?

Já, það var 2. júní 2021 á Korpu (Sjórinn), 6. holan, ca 125 metrar með 9 járninu. Áhorfendur og allt. (Myndin hér að ofan er tekin við það tilefni).

Hvað er það fyndnasta eða skelfilegasta sem hefur gerst hjá þér á golfvellinum?

Ég sló í stein á 16 holu á Oddi og fékk boltann beint í punginn, meðspilurum mínum til mikillar gleði og ánægju. Eitt “skelfilegt” í viðbót var þegar ég fór 4. holuna á Nesinu á 13 höggum í Meistaramótinu (höggleik). Var að hugsa um að hætta í golfi eftir það. En svo kom bara næsta hola. Golfið er nefnilega eins og lífið.

Drauma hollið (lifandi eða látnir), hverjir væru það?

Tommy Fleetwood, Rory, Logi Bergmann og ég 🙂

Hraðaspurningar

Hvort segir þú oftar – golfbolti eða golfkúla?

Golfbolti.

Spilar þú með hvítum golfbolta?

Alltaf.

Uppáhalds tegund golfbolta?

Titleist.

Morgun-, síðdegis- eða kvöldgolf?

Síðdegisgolf, Kvöldgolf.

Oftar golfbíll eða ganga?

Ganga.

Hvort spilar þú meira á Íslandi eða erlendis?

Á Íslandi.

Ertu með birdie-pela í pokanum?

Nei.

Ferð þú í klúbbhúsið eftir hring – jafnvel í mat eða drykk?

Oftast.

Hvað vilt þú segja að lokum – og hvern skorar þú næst á í Yfirheyrslu Golfbolti.is?

Spilum hraðar, ekkert hangs, þetta er ekki flókið. Bæng. Ég skora á Sigurð Kára Kristjánsson æskuvin minn og toppmann í næstu yfirheyrslu.