Golfbolti.is

Yfirheyrslan

Birgir Björn Magnússon
Íþróttastjóri Keilis

Golfklúbbur

Golfklúbburinn Keilir

Forgjöf

+2,9

Hvenær byrjaðir þú að spila golf?

Ég byrjaði að æfa og spila sumarið sem ég varð 10 ára gamall en hafði haldið á kylfu fyrr.

Hvað er það sem þér finnst best við golf?

Útiveran, félagsskapurinn og fjölbreytnin.

Hver er uppáhalds golfvöllurinn þinn á Íslandi og erlendis?

Íslandi: Golfklúbburinn Keilir Erlendis: Victoria National.

Hver er uppáhalds kylfan í pokanum þínum?

Breyti um skoðun á þessu á milli daga. Akkúrat núna er það lobb vedsinn.

Hefur þú slegið rangan bolta?

Ekki sem ég man eftir.

Hver er eftirminnilegasti golfhringur sem þú hefur spilað?

Allir lægstu hringirnir mínir.

Hefur þú farið holu í höggi? Hvenær og hvar?

6. holu á Hvaleyrarvelli 8. holu á Akranesi 1. hola á Salina Municipal.

Hvað er það fyndnasta eða skelfilegasta sem hefur gerst hjá þér á golfvellinum?

Fyndnasta: Texas hringur með Venna Páer þegar ég var 13 ára. Skelfilegasta: Missa haus í reiðiskasti.

Drauma hollið (lifandi eða látnir), hverjir væru það?

Jack Tiger Scottie.

Hraðaspurningar

Hvort segir þú oftar – golfbolti eða golfkúla?

Golfbolti.

Spilar þú með hvítum golfbolta?

Alltaf.

Uppáhalds tegund golfbolta?

Titleist

Morgun-, síðdegis- eða kvöldgolf?

Morgungolf.

Oftar golfbíll eða ganga?

Ganga.

Hvort spilar þú meira á Íslandi eða erlendis?

Á Íslandi.

Ertu með birdie-pela í pokanum?

Nei.

Ferð þú í klúbbhúsið eftir hring – jafnvel í mat eða drykk?

Stundum.

Hvað vilt þú segja að lokum – og hvern skorar þú næst á í Yfirheyrslu Golfbolti.is?

Ég skora á Ísak Jasonarson.