Golfbolti.is

Yfirheyrslan

Hallgrímur Ólafsson
Leikari/kylfingur

Golfklúbbur

Keilir

Forgjöf

10

Hvenær byrjaðir þú að spila golf?

Prófaði eitt sumar 1997 en svo fór ég á fullt 2012.

Hvað er það sem þér finnst best við golf?

Golf hefur allt. Hreyfing, skemmtilegur leikur, félagsskapur, gleði og fullt af ógleymanlegum augnablikum.

Hver er uppáhalds golfvöllurinn þinn á Íslandi og erlendis?

Keilir er í miklu uppáhaldi og erlendis held ég svoldið upp á Las Colinas.

Hver er uppáhalds kylfan í pokanum þínum?

Driverinn og nýja 7 tré’ið.

Hefur þú slegið rangan bolta?

Já.

Hver er eftirminnilegasti golfhringur sem þú hefur spilað?

Þeir eru nú nokkrir, man hringinn þegar ég breikaði fyrst 80, því þakka ég meðspilaranum og bassa fantinum Friðriki Sturlusyni fyrir andlegan stuðning þegar við sáum í hvað stefndi. Svo er einnig ógleymanlegur hringur í Grafarholti fyrir nokkrum árum þar sem mér tókst að fá albatros á 12 holu. Hringurinn ekkert spes en albatrossinn stendur.

Hefur þú farið holu í höggi? Hvenær og hvar?

Þarf þess ekki. Ég er búinn að fá albatros. Það geta allir farið holu í höggi en albatross er fyrir lengra komna.

Hvað er það fyndnasta eða skelfilegasta sem hefur gerst hjá þér á golfvellinum?

Fjórfaldi skollinn eftir albatrossinn var fyndinn og skemmtilegur.

Drauma hollið (lifandi eða látnir), hverjir væru það?

Það myndi vera hin heilaga þrenning Lennon, Dyllan og Shakespeare.

Hraðaspurningar

Hvort segir þú oftar – golfbolti eða golfkúla?

Golfbolti.

Spilar þú með hvítum golfbolta?

Alltaf.

Uppáhalds tegund golfbolta?

Titleist, Bridgestone.

Morgun-, síðdegis- eða kvöldgolf?

Morgungolf.

Oftar golfbíll eða ganga?

Ganga.

Hvort spilar þú meira á Íslandi eða erlendis?

Á Íslandi.

Ertu með birdie-pela í pokanum?

Nei.

Ferð þú í klúbbhúsið eftir hring – jafnvel í mat eða drykk?

Oftast.

Hvað vilt þú segja að lokum – og hvern skorar þú næst á í Yfirheyrslu Golfbolti.is?

Frasinn “Hann skilar sér” huggar ekki neitt. Lélegt högg er bara lélegt högg. Ég skora á fljótasta kylfing í Evrópu Rúnar Frey Gíslason.