Yfirheyrslan
Ísak Jasonarson
PGA golfkennari
Golfklúbbur
Keilir
Forgjöf
3
Hvenær byrjaðir þú að spila golf?
Ætli ég hafi ekki verið um 6-7 ára þegar ég byrjaði að spila almennilega. Ég átti þá heima alveg upp við Setbergsvöllinn og í þokkabót átti fjölskyldan bústað í Öndverðarnesi. Það kom því ekkert annað til greina en að labba út á völl og leika sér.
Hvað er það sem þér finnst best við golf?
Það eru nokkrir hlutir, til dæmis: 1. Að vera með forgjöf og geta mjög auðveldlega séð hvort maður sé að bæta sig eða ekki. 2. Að geta spilað með hverjum sem er og keppt óháð aldri og fyrri störfum.
Hver er uppáhalds golfvöllurinn þinn á Íslandi og erlendis?
Hér heima myndi ég segja Keilir því það eru svo margar ólíkar holur á golfvellinum. Maður verður ekki þreyttur eftir 10-12 holur á því að spila svipaða holu aftur og aftur. Erlendis set ég K-Club í efsta sætið.
Hver er uppáhalds kylfan í pokanum þínum?
Pútterinn minn frá Scotty Cameron, Newport 2, búinn að vera í og úr pokanum í um 15 ár.
Hefur þú slegið rangan bolta?
Ekki í móti.
Hver er eftirminnilegasti golfhringur sem þú hefur spilað?
Ég á það á ferilskránni að hafa spilað með Birgi Leifi Hafþórssyni í lokaholli á GSÍ mótaröðinni. Skilaði fínu dagsverki sjálfur og fékk að sjá hvernig atvinnumenn spila -6 án þess að hafa átt sinn besta dag.
Hefur þú farið holu í höggi? Hvenær og hvar?
Á 6. holu á Korpunni í unglingamóti með góðum vini mínum Gísla Ólafssyni. Gleymi aldrei viðbrögðum pabba hans sem stóð við 5. flöt og lét okkur vita að boltinn hefði endað í holu. Svo fór ég holu í höggi á 13. holu í Öndverðarnesi einn með heyrnatól. Sú upplifun var ekki minna eftirminnileg.
Hvað er það fyndnasta eða skelfilegasta sem hefur gerst hjá þér á golfvellinum?
Ætli það sé ekki bara þegar ég fór holu í höggi einn með heyrnatól. Minnir að ég hafi verið að hlusta á 50 Cent og horfði í kringum mig og sá ekki eina manneskju til að fagna með. Tók líklega aumt Tiger fagn og hélt áfram með hringinn.
Drauma hollið (lifandi eða látnir), hverjir væru það?
Tiger Woods, Rory McIlroy og svo væri ég með Gísla Sveinbergsson með mér í holli þannig að við gætum farið yfir allar okkar pælingar um golfsveifluna með þeim bestu.
Hraðaspurningar
Hvort segir þú oftar – golfbolti eða golfkúla?
Golfbolti.
Spilar þú með hvítum golfbolta?
Alltaf.
Uppáhalds tegund golfbolta?
Titleist.
Morgun-, síðdegis- eða kvöldgolf?
Kvöldgolf.
Oftar golfbíll eða ganga?
Ganga.
Hvort spilar þú meira á Íslandi eða erlendis?
Á Íslandi.
Ertu með birdie-pela í pokanum?
Stundum.
Ferð þú í klúbbhúsið eftir hring – jafnvel í mat eða drykk?
Oftast.
Hvað vilt þú segja að lokum – og hvern skorar þú næst á í Yfirheyrslu Golfbolti.is?
Ég er með einföld golfkennslu myndbönd á samfélagsmiðlum sem ég þú gætir haft gaman að. Leitaðu að isakjasgolf á Instagram, Tiktok eða Facebook. Ég skora á Bjarka Pétursson, framkvæmdastjóra Golfklúbbs Borgarness og fyrrum atvinnukylfing.



